Sprettur afrekssjóður UÍA og Alcoa haustúthlutun
Haustúthlutun úr Spretti afrekssjóði UÍA og Alcoa fer fram í byrjun október. Tekið verður við umsóknum í sjóðinn til og með 30. september.
Úr sjóðnum er úthlutað fjórum gerðum styrkja; afreksstyrkir, iðkendastyrkir, þjálfarastyrkir og félagsstyrkir. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð má finna hér á síðunni undir SPRETTUR Afrekssjóður.