Bikarkeppni FRÍ 16 ára og yngri MYNDIR
Bikarkeppni FRÍ 16 ára og yngri fór fram á Laugum 21. ágúst síðastliðinn. Tíu lið mættu til leiks og voru þau víðsvegar að af landinu. UÍA telfdi fram ungu og upprennandi liði en meðalaldur liðsins var 14 og hálft ár.
Lið UÍA hafnaði í 9. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 67 stig. Framkvæmd mótsins gekk vel og var það hið skemmtilegasta þrátt fyrir kulda og vætu.