Krakkamót UÍA - úrslit og myndir
Um fjörutíu þátttakendur af öllu Austurlandi, tíu ára og yngri, tóku þátt í krakkamóti frjálsíþróttaráðs UÍA sem fram fór á Vilhjálmsvelli fimmtudaginn 19. ágúst.
Keppt var í langstökki, boltakasti, 60 metra spretthlaupi og 400/600 metra hlaupi. Í mótslok var boðið upp á grillaðar pylsur og bleiki pardusinn kom í heimsókn, spreytti sig í þrautabraut og afhenti verðlaun.