Í formi á Höfn
Íþróttahátíðin Í formi verður haldin á Höfn í Hornafirði dagna 17. - 18. september næstkomandi. Á hátíðinni mæta íþróttakempur þrjátíu ára og eldri.
Í ár verður keppt í badmintoni, blaki, bridge, knattspyrnu, frjálsum íþrótum, golfi og brennibolta fyrir konur. Leitast er við að tímaseðlar skarist ekki.
Í fyrra mættu um 200 keppendur á móti sem lýkur á lokahátíð á laugardagskvöldi. Miklar æfingar eru hafnar meðal gestgjafanna á Hornafirði.
Nánari upplýsingar um mótið er að finna á www.iformi.is