Skvísurnar hömpuðu VHE bikarnum - MYNDIR
Lið Skvísanna sigraði í bikarkeppni VHE og UÍA í knattspyrnu kvenna sem fram fór á Fellavelli á laugardag. Skvísurnar mættu Hettunum í tveimur leikjum, töpuðu þeim fyrri 1-2 en unnu þann seinni 3-0.
Særún Sævarsdóttir úr liði Skvísanna varð markahæsti maðurinn með þrjú mörk. Þetta er í fyrsta sinn í áratug sem UÍA stendur fyrir bikarkeppni kvenna í knattspyrnu.