Atli Geir sló Íslandsmetið á Vilhjálmsvelli
Atli Geir Sverrisson, Hetti, sló í gærkvöldi Íslandsmetið í flokki 11-12 ára stráka í sleggjukasti á móti sem UÍA hélt.
Atli Geir kastaði sleggjunni 29,93 metra og bætti eigið met, sem hann setti á Laugum í lok júlí, um tvo metra og tíu sentímetra.
Von er á að Frjálsíþróttasamband Íslands staðfesti metið á fundi á morgun.