BN og Hrafnkell leika til úrslita
Boltafélag Norðfjarðar og Hrafnkell Freysgoði mætast á sunnudagskvöld í úrslitaleik bikarkeppni UÍA og Launafls í knattspyrnu. Leikurinn verður á Eskifjarðarvelli klukkan 19:00.
Hrafnkell lagði handhafa bikarsins, Spyrni, í undanúrslitum 5-1 á meðan BN vann 06. apríl 3-2. BN vann deildarkeppnina í ár og lék til úrslita í fyrra en Hrafnkell tekur nú þátt í keppninni í annað sinn.