Unglingalandsmótið sett
Unglingalandsmótið var sett í Borgarnesi í gærkvöldi. Keppni hófst upp úr hádegi á fimmtudag í körfuknattleik. Í gær var keppt í frjálsum íþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik og golfi. Keppendur UÍA á mótinu eru 27 og keppa í körfuknattleik, glímu, skák, frjálsum íþróttum, sundi, knattspyrnu og golfi. Sundmenn stungu sér til sunds í morgun en keppt verður í skák og glímu á morgun.