Landsliðskonur á ferð um Austurland
Landsliðskonurnar Katrín Ómarsdóttir og Þóra B. Helgadóttir munu heimsækja Egilsstaði og Reyðarfjörð á miðvikudag og stýra þar æfingum fyrir ungar knattspyrnustelpur.
Þóra hefur undanfarin ár skipað sér sess sem einn fremsti markvörður Evrópu og leikur sem atvinnumaður með besta félagsliði Svíþjóðar, LdB Malmö. Katrín Ómarsdóttir er einn fjögurra Íslendinga sem leikur með Kristianstads DFF og hefur skorað tvö mörk í átta leikjum á yfirstandandi tímabili. Þóra á að baki 74 landsleiki fyrir A-landslið kvenna og Katrín 32 landsleiki. Það er því ljóst að þær stöllur búa yfir mikilli reynslu sem þær munu miðla af til stelpnanna á ferð sinni um Austurland.
Dagskrá ferðarinnar er sem hér segir:
Miðvikudagur 21. júlí
Egilsstaðir
13:30-15:00 Æfing 5. 6. og 7. flokkur kvenna
Reyðarfjörður
16:30-18:00 Æfing 5. 6. og 7. flokkur kvenna