Takk fyrir okkur
Elín Rán Björnsdóttir, formaður UÍA, er afskaplega ánægð með hvernig til tókst á Sumarhátíð sambandsins og Síldarvinnslunnar um helgina. Hún segist sérstaklega þakklát fjölda sjálfboðaliða sem tryggðu lipran gang keppninnar.
„Aðildarfélögin stóðu saman öll sem eitt við framkvæmd mótsins og var frábært að sjá hvað allir foreldrar voru boðnir og búnir til að aðstoða.
Keppendur stóðu sig frábærlega vel ekki bara í keppni heldur líka framkomu og hjálpsemi. Það er dásamlegt að sjá hvað austfirskir krakkar eru duglegir og hvað foreldrar þeirra eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að hjálpa börnunum sínum og um leið íþróttahreyfingunni í heild.
Ég get ekki sagt annað en takk fyrir okkur!“