Sex stigum munaði í stigakeppni í sundi

Neisti frá Djúpavogi tryggði sér í dag sigur í stigakeppni liða á Eskjumótinu í sundi á Sumarhátíð UÍA og Síldarvinnslunnar 2010. Munurinn var ekki mikill, aðeins sex stig.

 

Neisti náði 378 stigum en Þróttur 372. Mikil spenna ríkti áður en úrslitin voru tilkynnt enda hörð keppni háð og ýmsir stungið sér til sunds til að afla stiga fyrir sitt félag.

 

Nánari úrslit sundkeppnarinnar koma á vef UÍA eftir helgi.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok