Frjálsíþróttamót Samkaupa á Sumarhátið
Opnað hefur verið fyrir skráningu í frjálsíþróttamót Samkaupa á Sumarhátíð 2010. Keppnin í frjálsum nær yfir þrjá daga, 15 ára og eldri keppa seinni part föstudagsins 9. júlí, 11-14 ára keppa laugardag og sunnudag og 10 ára og yngri á sunnudag.
Skráningarfrestur er til klukkan 18:00 miðvikudaginn 7. júlí. Skráningargjald er 1.500 á keppanda, óháð greinafjölda. Nánari upplýsingar og skráningar eru á skrifstofu UÍA á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 471-1353.
Samkaup er sérstakur styrktaraðili frjálsíþróttamótsins.
Hér má sjá greinalista mótsins.