Tæknifundur í frjálsíþróttaskóla
Gærdeginum lauk á myndafundi þar sem farið var yfir myndir frá deginum. Á hlaupaæfingu, þar sem æfðar voru ræsingar og grindahlaup, voru teknar myndir af krökkunum sem sýndu vel hvernig þau stökkva yfir grindurnar og beita líkamanum þegar þau fara af stað. Áhuginn var mikill um kvöldið þegar skarinn hópaðist saman í kringum þjálfarann sem fór yfir myndirnar og útskýrði hvað væri vel gert og hvað mætti betur fara.