Helgi á göngu: Útivistar og menningarhelgi á Borgarfirði eystri

Ungmennafélag Borgarfjarðar, í samstarfi við Ungmennafélag Íslands og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, standa fyrir verkefninu Helgi á göngu. Á Borgarfirði teygir það sig yfir hálfa næstu viku.

Miðvikudagur 23. júní
Sólstöðuganga á Svartfell (510m.y.s.)

Lagt af stað frá Breiðuvíkurafleggjara austan Fjarðarár kl 22:00 og gengið á Svartfell
Frí ganga undir leiðsögn heimamanna og allir velkomnir.
Eftir göngu er opið hús í  Fjarðarborg. Lifandi tónlist og eitthvað gott með kaffinu.


Fimmtudagur 24. júní
Stapavík - Gönguskörð - Njarðvík

Lagt af stað frá Unaósi kl 14:00 og gengið út með Selfljóti að Stapavík en þar er  gömul uppskipunarhöfn.
Þeir sem vilja geta gengið sömu leið til baka en leiðsögn verður um gömlu þjóðleiðina til Njarðvíkur og Borgarfjarðar um Gönguskörð.


Föstudagur 25. júní
Borgarfjörður – Brúnavík – Breiðuvík

Gengið undir leiðsögn frá Kolbeinsfjöru í Borgarfirði til Brúnavíkur um Brúnavíkurskarð. Í Brúnavík verður einstök líparítfjaran skoðuð. Frá Brúnavík er haldið í Súluskarð, gengið ofan Hvalvíkur og Kjólsvíkur og áfram til Breiðuvíkur.
Gist verður um nóttina í Breiðuvíkurskála. Kvöldvaka, tónlist og grill um kvöldið þar sem hver og einn kemur með grillvarning fyrir sig. Öllum er velkomið að taka þátt í þessari kvöldstund og er aðgangur ókeypis. Drykkir verða seldir í Breiðuvík fyrir þá sem vilja. Boðið verður upp á trússflutning til og frá Breiðuvík.


Laugardagur 26. júní
Breiðuvík – Borgarfjörður, um Víknaheiði

Gengið inn dalinn í Breiðuvík og yfir Víknaheiði sem þykir einn fegursti fjallvegur á Íslandi. Í botni Borgarfjarðar er gengið framhjá Gæsavötunm, og um Urðarhóla við Urðarhólavatn
Tónleikar um kvöldið í Fjarðarborg með valinkunnum listamönnum.


Sunnudagur 27. júní
Létt skoðunarferð um Bakkgerðisþorp undir leiðsögn kl 14:00

Verðskrá:

Sólstöðugangan - Frítt
Stapavík - 1000.- kr.
Borgarfjörður – Breiðuvík - Borgarfjörður
Félagsmaður (F.Í. eða F.F.F) , maki og barn yngra en 18 ára hver pers. 4.300.- kr.
- Aðrir  kr. 6.200.- kr.
- Ef gist er á tjaldstæði  kr  2.800.- kr. félagsmenn   
- Utan félagsmenn  3.200- kr.
- Trússflutningur kr 1.000.- kr. á manninn fyrir báðar leiðir
- Morgunmatur og nesti til næsta dags 2000.- kr  sent í skála. Tekið við skráningum daginn áður.
Bæjarrölt á Borgarfirði - Frítt

Upplýsingar um gistingu og tjaldsvæði á Borgarfirði er að finna á borgarfjordureystri.is

Skráningar í göngu og skála er í síma: 893-9913 / 472-9913 hjá Bryndísi Snjólfsdóttur

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ