Kastmót og Víðavangshlaup
Minnum á að skráningar standa yfir í Víðavangshlaup UÍA sem fram fer á Djúpavogi 22. maí og eins Kastmót UÍA sem fer fram 20. maí.
Víðavangshlaup UÍA er nú endurvakið eftir margra ára dvala, þetta er afar skemmtilegt hlaup og veglegir gripir afhentir fyrir 1 sæti í öllum flokkum 11 ára og eldri! Allir 10 ára og yngri fá viðurkenningu fyrir þátttöku.
Kastmótið er hluti af greinamótaröð frjálsíþróttaráðs en það er stigakeppni milli einstaklinga. Sá einstaklingur sem stendur uppi stigahæstur eftir þrjú mót vinnur til verðlauna í haust. Hvetjum alla til að taka þátt!