Úthlutun úr Spretti
Úthlutunarnefnd Spretts Afrekssjóðs UÍA og Alcoa fundaði í vikunni til að velja úr innsendum umsóknum í sjóðinn. Úthlutun fer fram á morgun laugardag, á Fjarðaálsmótinu í Knattspyrnu, sem fram fer í Fjarðabyggðarhöllinni.
Mikil ásókn er í sjóðinn og ekki auðvelt að velja á milli umsókna. Ljóst er að mikið af austfirsku íþróttafólki er að ná langt í sínum greinum, gróska er í félögunum og þjálfarar leggja á sig mikið til að afla sér aukinnar þekkingar. Nánari frétta af úthlutuninni er að vænta á morgun.