Undirbúningur Sumarhátíðar í fullum gangi
Sumarhátíð UÍA fer fram 9.-11. júlí á Egilsstöðum. Undirbúningur er kominn á fullt og ljóst að margt spennandi verður í boði.
Að vanda verður boðið upp á stórt frjálsíþróttamót þar sem eldra liðið keppir á föstudags eftirmiðdag, en börnin keppa á laugardag og sunnudag.
Sundmót fer fram á föstudag og laugardag.
6., 7. og 8. flokks mót í knattspyrnu fer fram á laugardag
Golfmót fer fram á föstudag.
Strandblaksmót verður á sunnudag.
Opið boccia mót verður á sunnudag.
Enn eru að bætast við íþróttamót og er það von undirbúningsnefndar að austfirðingar og nágrannar fjölmenni. Grillað verður ofan í keppendur seinnipart laugardags þar sem einnig verður boðið upp á tónlist, sprell og gaman. Taktu helgina frá!