Spyrnir og BN í úrslit
Spyrnir af Fljótsdalshérað og Boltafélag Norðfjarðar mætast í úrslitum Launaflsbikarsins eftir viku.
Undanúrslit keppninnar voru leikin í kvöld. Í Neskaupstað vann BN UMFB 3-1 en Spyrnir lagði 06. apríl 3-1 á Fellavelli. Úrslitaleikurinn fer fram á Fáskrúðsfirði klukkan 17.00 laugardaginn 15. ágúst.