Tímaseðill frjálsíþróttamóts
Tímaseðill Frjálsíþróttamóts Sumarhátíðar 2009 liggur nú fyrir. Hann er birtur með fyrirvara um smávægilegar breytingar.
Öll keppni í flokki 17 ára og eldri fer fram á föstudegi frá kl. 18:00. Keppendur sem eru 10 ára og yngri keppa í öllum sínum greinum á sunnudegi. Mæting fyrstu keppenda á sunnudag er kl. 9:00 en keppni hefst 9:30.Hátíðardagskrá er á Vilhjálmsvelli klukkan 17:00 á laugardag. Þar munu m.a. hlauparar úr Friðarhlaupinu koma við.