Skíðaslúttfútt hjá Skíðafélagi Fjarðarbyggðar

Iðkenndur og foreldrar hjá skíðafélagi Fjarðabyggð luku skíðavetrinum með smá skemmtun í og við Grunnskólann á Eskifirði síðast liðna helgi. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur yfir veturinn auk þess sem allir iðkendur úr Stubbaskólanum, sem er skíðanámskeið fyrir þau yngstu, fengu viðurkenningar.

 

Eftir að búið var að grilla ofan í liðið héldu Ísland got Talent stjörnurnar, BMX Brós, velheppnaða sýningu fyrir viðstadda. Krakkarnir spiluðu svo nýstárlega útfærslu af bingói meðan foreldrarnir funduðu um stöðu mála hjá félaginu.

Það var flottur hópur skíðaiðkanda úr Fjarðabyggð sem fór fagnandi út í sumarið og hlakkar til að koma sterk inn næsta vetur.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok