Frjálsíþróttafólk á Byrsmóti

Fimmtán börn og unglingar frá frjálsíþróttadeild Hattar lögðu leið sína norður síðustu helgi og kepptu á Byrsmóti UFA í Boganum á Akureyri. Mótið var fjölmennt og stóðu krakkarnir sig með miklum sóma. Vakti það meðal annars athygli að UÍA átti þrjá efstu menn í hástökki 12-13 ára stráka.

Úrslit mótsins má nálgast í mótaforriti FRÍ.

Hér á myndinni til hliðar má sjá hópinn ánægðan eftir viðburðarríkan dag og gómsæta pizzuveislu í boði mótshaldara.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok