Tíu keppendur á MÍ 11-14 ára

Tíu keppendur frá UÍA taka þátt í Meistarmóti Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss 11-14 ára sem fram fer í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal um helgina. Lokið er fyrri degi af tveimur og hafa nokkur verðlaun þegar skilað sér í hús.


Daði Þór Jóhannson frá Fáskrúðsfirði fór heim með tvenn bronsverðlaun á fyrsta degi. Fyrst hljóp hann 60 metra hlaup á 9,34 sekúndum og síðan 800 metra hlaup 2:51.56 mínútum. Nokkrir keppendur hafa bætt sig í keppni eða verið nærri verðlaunasætum.

Nánari úrslit má finna hér á vef FRÍ.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ